Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 11. september 2022 12:29
Brynjar Ingi Erluson
Leikur Rangers og Napoli færður um einn dag
Rangers spilar við Napoli á miðvikudag
Rangers spilar við Napoli á miðvikudag
Mynd: EPA
UEFA sendi frá sér tilkynningu í dag þess efni að leikur Rangers og Napoli í Meistaradeild Evrópu hefur verið færður um einn dag og verður því spilaður á miðvikudag í stað þriðjudags.

Rangers og Napoli spila bæði í A-riðlinum með Ajax og Liverpool en þetta er önnur umferð riðlakeppninnar.

Elísabet Bretadrottning lést á fimmtudag, 96 ára að aldri, en Bretar hafa syrgt hana síðustu daga og verður því skortur á mannafli frá lögreglunni.

Það þýðir að leikur Rangers og Napoli var færður frá þriðjudegi til miðvikudags.

Hann verður spilaður klukkan 19:00 á miðvikudag á Ibrox-leikvanginum.


Athugasemdir
banner
banner
banner