11.09.26 - 00:05
Brynjar Ingi Erluson
Clearlake að eignast Chelsea að fullu

Todd Boehly er á útleið

Mynd: EPA

Clearlake Capital eignast Chelsea

Mynd: EPA

Todd Boehly er á útleið

Mynd: EPA
Clearlake Capital, stærsti hluthafi í enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea, er að eignast félagið að fullu, en þetta segir Telegraph og Guardian.
Clearlake Capital ætlar að kaupa þá Todd Boehly, Mark Walter og Hansjorg Wyss út úr Chelsea og eignast félagið að fullu. Viðræður hafa staðið yfir undanfarna mánuði en Clearlake á 61,5 prósent í félaginu og þremenningarnir hin 38,5 prósentin.
Þeir keyptu Chelsea saman af Roman Abramovich fyrir fjórum árum á 2,5 milljarða punda og skuldbundu sig jafnframt til að leggja 1,75 milljarða punda í uppbyggingu félagsins. Nú segir Telegraph allt stefna í að Boehly, sem hefur verið stjórnarformaður, yfirgefi félagið ásamt Walter og Wyss.
Viðræðunum hefur miðað áfram þar sem Walter reynir að afla fjár til að greiða tryggingafélögum eftir rannsókn bandarískra alríkisyfirvalda á meintum skattsvikum. Hann seldi á dögunum 85 prósenta hlut sinn í Los Angeles Lakers til Josh Kushner, sem reyndi að kaupa hlut í mótum FIFA en varð frá að hverfa eftir mótmæli aðildarsambanda um allan heim.
Hluthafar Chelsea mega ekki selja hlut sinn til utanaðkomandi aðila án samþykkis hinna eigendanna og hefur Clearlake því sérstakan kauprétt á hlutum Boehly og Walter.
„Fyrirhuguð sala skilar Mark Walter hærri fjárhæð en hann fjárfesti upphaflega fyrir í Chelsea og því er þetta enn ein farsæl fjárfesting hans í íþróttum. Hann hyggst halda áfram að fjárfesta í íþróttum eftir söluna en átti ekki frumkvæðið að þessum viðskiptum, sem hafa verið í undirbúningi um nokkurt skeið,“ sagði talsmaður Walter.
Behdad Eghbali fór fyrir Clearlake þegar félagið keypti Chelsea og hefur ráðið ferðinni síðan. Til stóð að skipta um stjórnarformann á næsta ári en vonir standa til að kaupin lægi öldurnar innan félagsins.
Þeim Boehly og Eghbali hefur ekki komið saman um ýmis mál, meðal annars hvort byggja eigi nýjan leikvang á öðrum stað eða ráðast í endurbætur á Stamford Bridge.