Fotbolti.net
11.09.26 - 00:20
Brynjar Ingi Erluson

Sá rautt í frumrauninni og tók metið af Liverpool-manninum

Knecny entist í tæpar fjórar mínútur

Knecny entist í tæpar fjórar mínútur

Canon

Mynd: EPA

Heldur óeftirsóknarvert met var sett í Meistaradeildinni í kvöld þegar Slavia Prag og Lens mættust í Prag í Tékklandi.
Tékkinn Mikulas Konecny kom inn á í hálfleik en aðeins þremur mínútum og 34 sekúndum síðar var hann kominn með beint rautt spjald í sínum fyrsta Meistaradeildarleik fyrir félagið.

Framherji Lens náði að stinga sér fram fyrir hann og var að sleppa í gegn þegar Konecny sparkaði hann niður. Dómarinn var fljótur að fara í vasann og senda Tékkann í sturtu.

Konecny setti þar með heldur óeftirsóknarvert met en enginn hefur fengið rautt spjald eftir færri mínútur í frumraun sinni í Meistaradeildinni. Fyrra metið átti Liverpool-maðurinn Amara Nallo, sem var rekinn af velli gegn PSV aðeins þremur mínútum og 44 sekúndum eftir að hafa komið inn á í sínum fyrsta leik í keppninni tímabilið 2024-2025.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.