Fotbolti.net
11.10.26 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Aldrei þurft að hafa neina reglu um það"

Eftir leik hjá íslenska kvennalandsliðinu.

Eftir leik hjá íslenska kvennalandsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Eins og hefur verið fjallað um síðustu daga þá var fundað hjá KSÍ vegna agabrota leikmanna karlalandsliðsins í síðasta verkefni. Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Fótbolta.net að búið væri að ræða við leikmennina og málið væri afgreitt. Það yrðu engir eftirmálar.
Las viðtölin og vissi þá hvað Króatar óttuðust
TENGT EFNI

Las viðtölin og vissi þá hvað Króatar óttuðust

Fótbolti.net óskaði eftir viðbrögðum frá KSÍ eftir að hávær orðrómur fór af stað um áfengisneyslu leikmanna í landsliðsverkefninu, en nokkrir leikmenn eru sagðir hafa heimsótt pókerklúbb eftir leik liðsins gegn Búlgaríu hér heima.

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, var í viðtali við Fótbolta.net eftir 4-0 sigur á Króatíu spurður að því hvort að skýrar reglur væru í landsliðsgluggum hjá kvennalandsliðinu er varðar áfengisneyslu og annað slíkt.

„Nei, ég hef í raun aldrei þurft að hafa neina reglu um það," sagði Þorsteinn. Engin slík máli hafi komið upp hjá kvennalandsliðinu frá því hann tók við í byrjun árs árið 2021 og hann hafi ekki þurft að hafa neinar áhyggjur.

Þorsteinn sagði á fréttamannafundi seint á árinu 2021 að áfengi væri ekki á boðstólnum í landsliðsferðum. „Það er ekkert áfengi í gangi þannig ég hef ekki þurft að banna nokkurn skapaðan hlut," sagði Steini þá.
Agavandamál kom upp í síðasta glugga hjá karlalandsliðinu.

Agavandamál kom upp í síðasta glugga hjá karlalandsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.