Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 11. nóvember 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Enginn annar smitaður hjá Ungverjum
Icelandair
Mynd: Getty Images
Ungverska knattspyrnusambandið hefur greint frá því að Marco Rossi, þjálfari liðsins, hafi verið sá eini sem jákvætt í skimun liðsins í gær.

Rossi hefur yfirgefið herbúðir ungverska liðsins en hann er kominn í einangrun.

Rossi verður því ekki á hliðarlínunni gegn Íslandi í umspili um sæti á EM annað kvöld.

Enginn annar leikmaður eða starfsmaður greindist með veiruna í skimuninni í gær en stefnt er á aðra skimun í dag.

Giovanni Costantino, sem er í þjálfarateymi Ungverja, greindist með kórónuveiruna fyrir helgi og hann verður einnig fjarri góðu gamni á morgun.

Fréttamannafundur Ungverja fyrir leikinn átti að vera klukkan 11:00 í dag en honum hefur verið frestað til 19:00.


Athugasemdir
banner
banner
banner