Fotbolti.net
27.11.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Með Ólympíuleika í blóðinu - „Einn besti bakgrunnurinn"

Örvar Eggertsson.

Örvar Eggertsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þegar horft er á leiki Stjörnunnar þarf ekki að horfa lengi til að taka eftir því að Örvar Eggertsson er sérlega mikill og öflugur íþróttamaður.

Hann er góður fótboltamaður en íþróttamennska er einkennandi fyrir hans leik. Hann hleypur hratt, er líkamlega sterkur og getur hoppað hátt.

Hann býr yfir bakgrunni úr frjálsum íþróttum og handbolta hjá FH, æfði það meðfram fótboltanum.

Örvar hefur hann ekki langt að sækja íþróttahæfileikana því foreldrar hans voru bæði í frjálsum íþróttum. Hann ræddi við Fótbolta.net í gær.
Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"
TENGT EFNI

Líður mjög vel í Garðabæ - „Mæti á æfingu þegar mér er sagt að mæta"

Einn besti bakgrunnur sem hægt er að hafa
Hvaðan kemur þetta?

„Pabbi og mamma voru bæði frjálsíþróttafólk. Pabbi fór á Ólympíuleikana á sínum tíma í kringlukasti og mamma var langhlaupari. Þetta kemur svolítið þaðan og ég stundaði frjálsar frá ungum aldri."

„Ég var í fótbolta, handbolta og frjálsum, allt á sama tíma með FH."

„Ég ákvað svo á fyrsta ári í þriðja flokki, sagði þá að fótboltinn yrði númer eitt."


Faðir Örvars er Eggert Ólafur Bogason sem fór á Ólympíuleikana í Seúl árið 1988.

Finnur þú alveg að þessi bakgrunnur hjálpar þér í fótboltanum?

„Ég held að frjálsar gefi bara einn besta grunnbakgrunn sem þú getur haft sem íþróttamaður."

Örvar skoraði átta mörk og lagði upp átta fyrir Stjörnuna á liðnu tímabili sem var hans þriðja í Garðabæ.
Með Ólympíuleika í blóðinu - „Einn besti bakgrunnurinn"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með Ólympíuleika í blóðinu - „Einn besti bakgrunnurinn"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.