Fotbolti.net
12.01.20 - 15:42
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Byrjunarlið Aston Villa og Man City: Jesus og Aguero byrja

Sergio Aguero ásamt Gabriel Jesus er í byrjunarliði Englandsmeistaranna.

Sergio Aguero ásamt Gabriel Jesus er í byrjunarliði Englandsmeistaranna.

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaleikur 22. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar fer fram á eftir á Villa Park, flautað verður til leiks í viðureign Aston Villa og Manchester City klukkan 16:30.
Dean Smith knattspyrnustjóri Aston Villa gerir fimm breytingar frá síðasta deildarleik, nýjasti leikmaður liðsins Danny Drinkwater kemur beint inn í liðið.

Stærstu fréttirnar af byrjunarliði Manchester City eru þær að bæði Aguero og Jesus byrja, þetta er í fyrsta skipti í deildarleik síðan í september 2018 sem þessir tveir framherjar byrja báðir hjá Pep Guardiola.

Byrjunarlið Aston Villa: Nyland, Konsa, Mings, Hause, Elmohamady, Douglas Luiz, Drinkwater, Hourihane, Taylor, Grealish, El Ghazi.

Varamenn: Kalinic, Chester, Lansbury, Marvelous, Trezeguet, Guilbert, Vassilev.

Byrjunarlið Man City: Ederson, Stones, Cancelo, Rodrigo, Fernandinho, Mendy, De Bruyne, David Silva, Mahrez, Jesus, Aguero.

Varamenn: Bravo, Walker, Sterling, Gundogan, Bernardo Silva, Otamendi, Foden.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.