Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 12. janúar 2021 12:30
Elvar Geir Magnússon
Hleypa Barkley ekki frá sér á neinu afsláttarverði
Ross Barkley er 27 ára.
Ross Barkley er 27 ára.
Mynd: Getty Images
Ross Barkley mun ekki fá að yfirgefa Chelsea á neinu afsláttarverði í sumar þrátt fyrir umræðu um að Aston Villa vilji kaupa hann.

Barkley kom á lánssamningi í september og fór fantavel af stað hjá Villa en hefur verið á meiðslalistanum síðan í nóvember vegna meiðsla aftan í læri.

Frank Lampard er með fullt af miðjumönnum og þarf að fækka í hópnum sínum. Barkley á enn tvö og hálft ár eftir af samningi sínum en hann er með rúmlega 100 þúsund pund í vikulaun.

Ekki er talið útilokað að Lampard telji enn að Barkley gæti átt framtíð fyrir sér á Stamford Bridge.

Dean Smith, stjóri Aston Villa, hrósaði Barkley í hástart í nóvember og sagðist ætla að hjálpa honum að komast í enska landsliðshópinn fyrir EM alls staðar næsta sumar.

Barkley hefur ekki spilað landsleik fyrir England síðan hann skoraði tvisvar í 6-0 sigri gegn Búlgaríu í október 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner