Bandaríski miðvörðurinn Caroline Van Slambrouck er gengin til liðs við Keflavík frá Santa Teresa á Spáni. Hún lék með ÍBV hér á landi frá 2017-2019. Hún gerir tveggja ára samning við Keflavík.
Caroline 29 ára gömul en hún gekk til liðs við ÍBV þegar Natasha Anasi gekk til liðs við Keflavíkur. Nú fer hún í Reykjanesbæinn til að leysa Natöshu aftur af þar sem hún er farin til Breiðabliks.
„Caroline spilar í stöðu miðvarðar og væntumst við mikils af henni og hlökkum til að sjá hana á vellinum í efstu deild í sumar," segir í tilkynningu Keflavíkur.
Keflavík voru nýliðar í Pepsi Max-deildinni í sumar og enduðu sæti fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir