FIFA hefur verið með þær hugmyndir á lofti að heimsmeistaramótið fari fram á tveggja ára fresti í stað fjögurra. Þessar hugmyndir hafa skapað mikla umræðu og margir eru mótfallnir.
Talað er um að þetta rýri verðleika mótsins og þá hafa leikmenn látið vita af því að nú þegar sé leikjaálagið afskaplega mikið.
Það er alveg ljóst að lesendur Fótbolta.net vilja ekki sjá HM á tveggja ára fresti, miðað við skoðanakönnun sem var á forsíðu. Um 90% lesenda vilja halda HM á fjögurra ára fresti.
5.424 tóku þátt í könnuninni.

Styður þú að hafa HM á tveggja ára fresti?
Já: 10,44%
Nei: 89,56%
Athugasemdir