Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. febrúar 2020 12:30
Elvar Geir Magnússon
Martial: Mourinho hefði átt að tala beint við mig
Jose Mourinho og Anthony Martial.
Jose Mourinho og Anthony Martial.
Mynd: Getty Images
Anthony Martial, leikmaður Manchester United, hefur tjáð sig um samband sitt við Jose Mourinho á meðan sá portúgalski hélt um stjórnartaumana á Old Trafford.

Martial var inn og út úr liðinu undir stjórn Mourinho og samband þeirra eldfimt. Mourinho gagnrýndi franska leikmanninn opinberlega í fjölmiðlum.

„Það er satt að ég hefði frekar viljað að hann myndi tala beint við mig. Það er engin þörf á að gera það framan alla. Ég vildi sanna að hann hefði haft rangt fyrir sér. Hann hafði mig utan byrjunarliðsins í einhvern tíma en í hvert skipti sem ég kom inn þá skoraði ég," segir Martial.

„Á endanum sagði hann við mig: 'Sjáðu, nú skilur þá hvað ég vildi'."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner