Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. febrúar 2021 15:06
Magnús Már Einarsson
Bailly gæti spilað á sunnudag
Eric Bailly
Eric Bailly
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Eric Bailly hefur hafið æfingar að nýju eftir meiðsli og hann gæti spilað með Manchester United gegn WBA á sunnudag.

Bailly spilaði síðast gegn Fulham 20. janúar en meiðsli hafa haldið honum frá keppni að undanförnu.

Paul Pogba verður ekki með í leiknum um helgina en hann er á meiðslalistanum.

Manchester United spilaði síðast gegn West Ham á þriðjudag og liðið hefur fengið meiri tíma til undirbúnings fyrir næsta leik en vanalega.

„Við fengum sjaldgæft tækifæri til að æfa smá og ná endurheimt. Við fengum miðvikudag, fimmtudag, föstudag og laugardag áður en kemur að leiknum á sunnudag og það er sjaldgæft fyrir okkur," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner