Fotbolti.net
12.02.21 - 22:30
Aksentije Milisic

England: Man City lagði Man Utd - Sjáðu laglegt vippumark

Caroline skorar í kvöld.

Caroline skorar í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Það var nágrannaslagur af bestu gerð í kvöld þegar Manchester City og Manchester United áttust við í kvennaboltanum á Englandi.
Bæði lið eru í toppbaráttunni og eru í 2. og 3. sæti sem stendur. Chelsea er í efsta sæti deildarinnar.

Lucy Bronze kom bláklæddum yfir í fyrri hálfleik og var staðan 1-0 þegar flautað var til leikhlés.

City bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleik og þau skoruðu þær Caroline Weir og Lauren Hemp. Markið hjá Caroline var einkar smekklegt og má sjá það hér fyrir neðan.

City er í öðru sæti deildarinnar með þremur stigum meira en Man Utd. María Þórisdóttir spilaði allan leikinn í vörn Manchester United.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.