Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 12. maí 2021 15:10
Ívan Guðjón Baldursson
Haaland í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Bristol City
Selfoss var að krækja í norska markvörðinn Benedicte Haaland sem hefur verið á mála hjá Bristol City í ensku Ofurdeildinni undanfarið ár.

Haaland er varamarkvörður hjá Bristol en hún á meðal annars leiki að baki fyrir Arna-Björnar og Sandviken í Noregi.

Benedicte er 23 ára gömul og þótti mikið efni áður fyrr. Hún lék 7 landsleiki fyrir U19 lið Noregs.

„Við erum að fá fínasta markmann þarna í samkeppni við Guðnýju sem er búin að standa sig gríðarlega vel í fyrstu leikjunum. Það er mikilvægt fyrir okkur að hafa samkeppni um markmannsstöðuna eins og aðrar stöður. Við erum spennt að fá Benedicte til okkar, hún er hávaxin og sterk með góða reynslu og kemur til með að efla hópinn okkar enn frekar,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss.

Í vetur kom þýski markvörðurinn Anke Preuß til liðs við Selfoss en hún meiddist illa á hendi í vor og verður ekki leikfær í sumar. Guðný Geirsdóttir hefur varið mark Selfoss í fyrstu tveimur leikjunum í Pepsi Max deildinni en hún er á láni frá ÍBV út leiktíðina.
Athugasemdir
banner
banner