Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 12. maí 2021 14:16
Ívan Guðjón Baldursson
Kórdrengir fá miðjumann frá Nígeríu (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fatai Adebowale Gbadamosi er búinn að skrifa undir samning við Kórdrengi og hefur fengið leikheimild í Lengjudeild karla.

Fatai er miðjumaður fæddur árið 1998 í Nígeríu sem hefur undanfarið spilað í utandeild í Tyrklandi. Það verður áhugavert að sjá hvernig honum tekst að fóta sig hér á landi.

Kórdrengir hafa verið á miklu flugi frá því að félagið var stofnað og verður spennandi að fylgjast með þeim í Lengjudeildinni í ár.

Þeir byrjuðu tímabilið á að gera 1-1 jafntefli við Aftureldingu og eiga næst heimaleik gegn Selfossi 14. maí. Kórdrengir fóru upp úr 2. deildinni með Selfyssingum í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner