Fotbolti.net
12.05.21 - 19:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Myndband: Galin tækling hjá leikmanni Leiknis

Octavio Paez samdi við Leikni fyrir tímabilið.

Octavio Paez samdi við Leikni fyrir tímabilið.

Canon

Mynd: Leiknir

KA hafði betur gegn Leikni, <a href="https://fotbolti.net/game.php?action=view_game&id=4595" target="_blank">3-0</a> í leik sem fram fór á Dalvík áðan.
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði tvisvar af vítapunktinum og þriðja markið gerði Ásgeir Sigurgeirsson á 70. mínútu leiksins.

Á 84. mínútu fór rauða spjaldið á loft eftir hræðilega tæklingu. Það var Octavio Paez, leikmaður Leiknis, sem fékk rauða spjaldið og er ekki annað hægt að segja en að það hafi verið mjög sanngjarnt.

Tæklingin var gjörsamlega galin og er Paez mjög heppinn að hafa ekki stórslasað leikmann KA.

„Þessi var rosaleg. Hann fór í tveggja fóta á Kára Gautason, of seinn og illa ígrundað," skrifaði Sæbjörn Steinke í beinni textalýsingu.

Hægt er að sjá myndband af tæklingunni með því að smella hérna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.