Tony Mowbray verður ekki lengur knattspyrnustjóri Blackburn Rovers eftir fimm ár við stjórnvölinn.
Mowbray kvaddi leikmenn og starfsfólk félagsins á æfingasvæðinu á þriðjudag.
Blackburn byrjaði síðasta tímabil mjög vel og var lengi í umspilssæti í Championship-deildinni, en svo hægðist á lestinni og að lokum hafnaði liðið í áttunda sæti sem var ekki nóg til að komast í umspil um sæti í úrvalsdeild.
Hinn 58 ára gamli Mowbray kom Blackburn upp úr C-deild árið 2018 og hefur gert flotta hluti sem stjóri liðsins.
Mowbray segist ekki hafa heyrt neitt frá félaginu um nýjan samning og er það ljóst að Blackburn ætlar sér að gera breytingu með því að fá inn nýjan stjóra.
Athugasemdir