Fotbolti.net
12.06.25 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Karius framlengir við Schalke

Karius framlengir við Schalke
Canon

Mynd: EPA

Loris Karius mun taka slaginn með Schalke í næst efstu deild á næstu leiktíð. Hann er búinn að skrifa undir tveggja ára samning.

Karius gekk til liðs við Schalke í janúar og gerði samning út tímabilið. Hann spilaði fjóra leiki en meiddist á kálfa og missti af endasprettinum.
Hann hefur hins vegar fengið traustið hjá stjórninni og skrifar undir nýjan samning og fær treyju númer eitt.

Karius er þýskur markvörður en hann hefur spilað yfir 200 leiki á ferlinum. Hann hefur m.a. leikið með Liverpool og þá var hann í herbúðum Newcastle frá 2022-2024 en lék aðeins tvo leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.