Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mán 12. júlí 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Atli Freyr og Stefán Birgir í Víði (Staðfest)
Atli Freyr er mættur í Víði.
Atli Freyr er mættur í Víði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víðir Garði hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir framhaldið í 3. deildinni.

Tímabilið hefur hingað til ekki verið gott fyrir Víði, sem féll úr 2. deild í fyrra.

Atli Freyr Ottesen og Stefán Birgir Jóhannesson eru mættir til félagsins. Það er ljóst að það er mjög góður liðsstyrkur.

Þeir koma báðir úr Njarðvík þar sem þeir hafa spilað undanfarin ár.

Atli Freyr hefur áður spilað með Víði; hann lék með liðinu 2019 og skoraði þá átta mörk í 21 leik. Atli er nú þegar byrjaður að spila með Víði og hann skoraði í 3-0 sigri gegn Einherja á laugardag.

Víðir er þessa stundina í áttunda sæti með 13 stig. Það eru átta stig upp í annað sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner