Ísak Andri Sigurgeirsson er genginn í raðir ÍBV á láni frá Stjörnunni.
Þessi sautján ára leikmaður á tvo U16 landsleiki að baki fyrir Ísland.
Þessi sautján ára leikmaður á tvo U16 landsleiki að baki fyrir Ísland.
Ísak Andri skaust heldur betur upp á sjónarsviðið þegar hann skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn Fylki í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar í fyrra.
Hann lék alls sjö leiki með Stjörnunni í efstu deild í fyrra og hefur komið við sögu í fjórum leikjum í Pepsi Max-deildinni á þessu tímabili.
ÍBV er í öðru sæti Lengjudeildarinnar og í harðri baráttu um að komast upp í efstu deild.
Sjá einnig:
Hin hliðin - Ísak Andri Sigurgeirsson
Athugasemdir