Fotbolti.net
12.07.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Draumabyrjun hjá Freysa - Róbert Frosti hetjan í Íslendingaslag

Freysi byrjar vel hjá Rosenborg

Freysi byrjar vel hjá Rosenborg

Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Rosenborg unnu sannfærandi 3-0 sigur á Kristiansund í frumraun Freysa með norska stórliðinu.
Freyr tók við Rosenborg á dögunum eftir að hafa verið látinn fara frá Brann.

Hann stýrði sínum fyrsta deildarleik í dag og byrjaði á sannfærandi sigri. Rosenborg komst í tveggja marka forystu á sex mínútna kafla í fyrri hálfleik og bætti svo þriðja markinu við snemma í þeim síðari.

Júlíus Mar Júlíusson spilaði allan leikinn hjá Kristiansund á meðan Hrannar Snær Magnússon kom inn af bekknum. Rosenborg er í 13. sæti með 12 stig en Kristiansund í 15. sæti með 11 stig.

Gömlu félagar Freys í Brann unnu 2-1 sigur á Start. Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Brann en Sævar Atli Magnússon sat á bekknum.

Sævar Atli að snúa eftir löng og erfið meiðsli. Hann lék í æfingaleik gegn Kristiansund á dögunum og var klár í að vera í hópnum í dag. Ánægjulegar fréttir fyrir hann og sömuleiðis Brann sem vinnur að því að færa sig upp töfluna, en liðið er í 7. sæti með 16 stig.

Viðar Ari Jónsson sat allan tímann á bekknum hjá Ham/Kam, sem gerði 2-2 jafntefli gegn Sandefjord. Ham/Kam er í 6. sæti með 18 stig.

Róbert Frosti Þorkelsson var hetja GAIS, sem marði 1-0 sigur á Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni. Hann skoraði sigurmarkið á 51. mínútu og var það annað sigurmark hans á leiktíðinni og þriðja markið í heildina.

Ari Sigurpálsson og Júlíus Magnússon voru báðir í byrjunarliði Elfsborg, sem er í 6. sæti með 18 stig. GAIS er í 4. sæti með 19 stig.
Róbert Frosti var hetja GAIS

Róbert Frosti var hetja GAIS

Canon

Mynd: GAIS

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.