Fotbolti.net
12.07.26 - 16:28
Brynjar Ingi Erluson

Rice var rúmliggjandi í þrjá daga fyrir Noregsleikinn

Rice var rúmliggjandi í þrjá daga fyrir Noregsleikinn
Canon

Mynd: EPA

Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, segir að ákvörðunin um að taka Declan Rice af velli í hálfleik í 2-1 sigrinum á Noregi, hafi verið fyrirfram ákveðin.
Tuchel ekki ánægður - „Vorum nógu heppnir"
TENGT EFNI

Tuchel ekki ánægður - „Vorum nógu heppnir"

Tuchel ákvað að taka Rice af velli og setja Eberechi Eze inn á til að fá meiri sóknarþunga í liðið.

„Það voru nokkrir leikmenn í vandræðum með hitann og Ezri Konsa var einn þeirra. Hann var með krampa og síðan eymsli aftan í læri.“

„Við tókum ákvörðun í hálfleik um að taka Declan út og bæta meiri sóknarþunga í liðið.“

„Ég tók þá ákvörðun þegar við vorum 1-0 undir og vildi ekki hætta við hana bara af því að við jöfnuðum leikinn,“
sagði Tuchel.

Rice var að glíma við taugavandamál í mjóbaki og aftan í læri, en veikindi bættu gráu ofan á svart.

„Við þurftum að taka annað hvort Elliot eða Declan út og við vissum að Declan hafði verið í vandræðum síðustu þrjá daga. Hann var meira og minna rúmliggjandi og við vissum því að hann gæti ekki þraukað í 90 mínútur.“

„Það var möguleiki á að leikurinn færi í framlengingu og við vildum ekki þurfa að eyða annarri skiptingu síðar. Ákvörðunin um að taka Declan út fyrr en nauðsynlegt var snérist því um að spara okkur aðra skiptingu síðar í leiknum,“
sagði Tuchel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.