Fotbolti.net
12.07.26 - 16:39
Brynjar Ingi Erluson

Fékk góð ráð frá mömmu sinni

Fékk góð ráð frá mömmu sinni
Canon

Mynd: EPA

Jude Bellingham, hetja Englendinga, fékk góð ráð frá mömmu sinni fyrir leikinn gegn Norðmönnum í gær sem hann fór eftir.
Maður dagsins á HM - Fær of mikla gagnrýni
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Fær of mikla gagnrýni

Móðir Bellingham hafði talað við son sinn alla vikuna um að passa sig á því að fá ekki gult spjald í leiknum.

Bellingham var á hættusvæði, en gult spjald hefði þýtt leikbann í undanúrslitunum.

Englendingurinn slapp við spjaldið og skoraði bæði mörkin sem fleyttu Englandi áfram. Hann var þakklátur fyrir ráð móður sinnar og hrósaði einnig dómaranum sérstaklega.

„Mamma var búin að tönnlast á því alla vikuna að ég þyrfti að passa orðbragðið, tæklingarnar, svipbrigðin og tilfinningarnar svo ég fengi ekki gult spjald.“

„Hún náði því að koma þessu inn í hausinn á mér og fékk mig til að passa mig. Í allri hreinskilni, þegar þú spilar á réttan hátt, þá leyfir dómarinn þér að tjá þig af virðingu.“

„Margir dómarar leyfa þér ekki að gera það, þannig að þegar ég næ rétta jafnvæginu og er með dómara sem er tilbúinn að hlusta, þá gerir það hlutina auðveldari. Ég verð því að hrósa honum sérstaklega,“
sagði Bellingham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.