
Byrjunarlið KR og ÍBV: Aftur gerir Óskar markvarðarbreytingu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tekur á móti ÍBV á Meistaravöllum í 14. umferð Bestu deildar karla klukkan 18:00. Byrjunarlið liðanna eru komin inn og má sjá þau hér að neðan.
Óskar Hrafn gerir fjórar breytingar frá ótrúlega 3-3 jafnteflinu gegn Þór í síðustu umferð. Gabríel Hrannar, Michael Akoto, Sigurður Breki og Sigurpáll Sören fara allir út úr liðinu. Sigurpáll Sören átti erfiðan dag gegn Þór þar sem hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu en Óskar setur hann aftur á bekkinn í dag. Gabríel fékk rautt spjald gegn Þór í lok leiksins eftir tvö gul spjöld og tekur því út bann í dag. Inn í liðið fyrir þá koma þeir Halldór Snær, Eiður Gauti, Ástbjörn Þórðarson og Hjalti Sigurðsson.
Aleksandar Linta gerir eina breytingu frá 1-0 sigrinum á Val í síðustu umferð. Inn í liðið kemur hann Omar Sowe en út fer hann Róbert Elís Hlynsson.
Byrjunarlið KR
Halldór Snær Georgsson, Finnur Tómas Pálmason, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Ástbjörn Þórðarson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson, Hjalti Sigurðsson, Galdur Guðmundsson, Orri Hrafn Kjartansson
Byrjunarlið ÍBV
Ari i Haraldstovu Petersen, Mattias Edeland, Milan Tomic, Sesar Örn Harðarson, Bjarki Björn Gunnarsson, Eiður Atli Rúnarsson, Arnór Ingi Kristinsson, Alex Freyr Hilmarsson (fyrirliði), Felix Örn Friðriksson, Vicente Rafael Valor Martínez, Omar Sowe


