Fotbolti.net
12.08.16 - 22:14
Jóhann Ingi Hafþórsson

Olivia Chance: Elska að vera á Íslandi - Ætla að fá mér ís

Auglýsing
Olivia Chance í leiknum í dag.

Olivia Chance í leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
„Það er mjög sérstakt að koma í íslensku deildina, ég hef elskað að vera hérna hingað til og stelpurnar hafa tekið vel á móti mér,\" sagði Olivia Chance, nýsjálenskur leikmaður Breiðabliks en hún skoraði eitt marka liðsins í 3-1 sigri á ÍBV í bikarúrslitum í kvöld.

Olivia skoraði eftir aðeins tvær mínútur en þá endaði langt skot hennar inni, eftir slæm mistök frá Bryndísi Láru, markmanni ÍBV. Henni segist sama hvernig boltinn fer inn.
„Ég elska að skora og mér er sama hvernig hann fer inn, ég er ánægð með að vera komin af stað og vonandi verð ég bara betri í framtíðinni.\"

Hún er mjög hrifin af veru sinni á Íslandi hingað til.

„Þetta er búið að vera gott, ég kann ekki tungumálið mjög vel en stelpurnar hafa verið góðar og ég hef notið þess að vera hérna.\"

Hún er brött á það sem eftir lifir tímabilsins en Breiðablik er í harðri baráttu við Stjörnuna og Val um deildarmeistaratitilinn.

„Við verðum að einbeita okkur að einum leik í einu og halda áfram að skora og halda áfram að vinna.\"

Hún er ekki búin að ákveða hvernig hún fagnar en hún gæti fengið sér ís í kvöld.

„Ekki ennþá, það gæti verið að ég fái mér ís,\" sagði hún að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.