Lið vikunnar í enska - Pogba, Eriksen og Sterling
Mirror valdi þetta sem úrvalslið helgarinnar.

Nick Pope (Burnley) - Er öruggur byrjunarliðsmaður hjá Burnley eftir brotthvarf Tom Heaton. Þakkaði traustið með geggjaðri frammistöðu gegn Southampton.

Mynd: Getty Images

Aaron Wan-Bissaka (Manchester United) - Frábær frumraun í treyju United. Öflugur varnarlega og aðstoðaði vel sóknarlega.

Mynd: Getty Images

Lewis Dunk (Brighton) - Fyrirliðinn var hrikalega traustur í 3-0 sigri gegn Watford.

Mynd: Getty Images

Harry Maguire (Manchester United) - Miðvörðurinn rándýri var hrikalega öflugur í sigri United.

Mynd: Getty Images

Erik Pieters (Burnley) - Hollenski bakvörðurinn var frábær í fyrsta leik sínum með Burnley eftir að hafa komið frá Stoke.

Mynd: Getty Images

Riyad Mahrez (Manchester City) - Var martröð fyrir varnarmenn West Ham.

Mynd: Getty Images

Paul Pogba (Manchester United) - Tók algjörlega yfir miðsvæðið gegn Chelsea.

Mynd: Getty Images

Christian Eriksen (Tottenham Hotspur) - Byrjaði á bekknum gegn Aston Villa en kom inn og breytti leiknum. Sá til þess að Spursarar fögnuðu sigri.

Mynd: Getty Images

Raheem Sterling (Manchester City) - Skoraði fjórðu þrennu sína á ferlinum þegar City rúllaði yfir West Ham.

Mynd: Getty Images

Ashley Barnes (Burnley) - Skoraði tvö mörk gegn Southampton.

Mynd: Getty Images

Harry Kane (Tottenham Hotspur) - Skoraði tvö mörk. Ágústbölvunin hefur verið grafin.

Mynd: Getty Images





