Fotbolti.net
12.08.26 - 08:47
Elvar Geir Magnússon

Botna ekkert í brottvísun Kristals

Kristall fær að líta rauða spjaldið.

Kristall fær að líta rauða spjaldið.

Canon

Mynd: Skjáskot

Norska félagið Brann hefur lagt inn formlega kvörtun til UEFA vegna rauða spjaldsins sem íslenski landsliðsmaðurinn Kristall Máni Ingason fékk í Evrópuleik gegn Apollon Limassol í gær.

Leikurinn var æsispennandi og réðust úrslit í framlengingu þar sem Brann tryggði sér 4-3 sigur samanlagt og komst í umspil um sæti í Sambandsdeildinni.

Í lok framlengingar fékk Kristall sitt annað gula spjald og þar með rautt. Dómarinn hafði vísað honum af velli í eina mínútu eftir að hann lá í grasinu og þegar Kristall sýndi trega til að verða við því var hann rekinn af velli.
Kristall skoraði og fékk rautt þegar Brann tryggði sér sæti í umspilinu
TENGT EFNI

Kristall skoraði og fékk rautt þegar Brann tryggði sér sæti í umspilinu

„Ég skil þetta ekki, hann fékk enga meðhöndlun á vellinum og því á hann ekki að fara út af. Ég skil ekki hvers vegna dómarinn ætlaði að senda hann af velli," sagði Eirik Horneland, þjálfari Brann, við VG eftir leik.

Íþróttastjóri Brann, Per-Ove Ludvigsen, hefur staðfest að félagið reyni að fá brottvísunina fellda niður þar sem það telur að dómarinn hafi ekki farið eftir réttum reglum.

VG bað dómarann um útskýringu á rauða spjaldinu en hann hafnaði þeirri beiðni.

Kristall var svo sannarlega í sviðsljósinu í leiknum en hann hafði skorað fyrsta markið eftir sendingu Eggerts Arons Guðmundssonar. Hér má sjá það helsta úr leiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.