Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 12. september 2020 13:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið C. Palace og Southampton: Batshuayi og Eze á bekknum
Batshuayi byrjar á bekknum hjá Palace.
Batshuayi byrjar á bekknum hjá Palace.
Mynd: Getty Images
Eftir rétt tæpan klukkutíma verður flautað til leiks í öðrum leik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni.

Þá tekur Crystal Palace á móti Southampton. Þessum liðum er spáð 15. sæti og tíunda sæti í spá fréttamanna Fótbolta.net.

Michy Batshuayi og Eberechi Eze, tveir leikmenn sem Palace hefur fengið til sín í sumar, eru á bekknum og þá er Nathan Ferguson, sem kom frá West Brom, ekki í hóp vegna meiðsla.

Hjá Southampton byrjar Danny Ings, sem átti stórkostlegt tímabil á síðustu leiktíð, í fremstu víglínu.

Hér að neðan má skoða byrjunarliðin.

Byrjunarlið Crystal Palace: Guaita, Mitchell, Ward, Dann, Kouyate, Schlupp, McArthur, McCarthy, Townsend, Zaha, Ayew.
(Varamenn: Hennessey, Milivojevic, Meyer, Batshuayi, Eze, Kelly, Woods)

Byrjunarlið Southampton: McCarthy, Walker-Peters, Bertrand, Stephens, Bednarek, Romeu, Smallbone, Ward-Prowse, Redmond, Adams, Ings.
(Varamenn: Forster, Vestegaard, Long, Djenepo, Obafemi, Tella, Vokins)
Athugasemdir
banner
banner
banner