Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 12. september 2020 05:55
Aksentije Milisic
England í dag - Veislan fer af stað
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildin verður flautuð af stað í dag og því ber að fagna. Það verður Lundúnarslagur á milli Fulham og Arsenal sem verður opnunarleikurinn fyrir þetta tímabil.

Klukkan 14:00 mætast svo Crystal Palace og Southampton og klukkan 16:30 er hörku slagur á Anfield þar sem Englandsmeistararnir í Liverpool fá Leeds United í heimsókn. Leeds er aftur mætt í deild þeirra bestu og ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í þessari fyrstu umferð.

Kvöldleikurinn er svo viðureign á milli West Ham og Newcastle og allir þessir leikir verða sýndir í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Laugardagur:
11:30 Fulham - Arsenal
14:00 Crystal Palace - Southampton
16:30 Liverpool - Leeds
19:00 West Ham - Newcastle
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner