Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 12. september 2021 08:30
Brynjar Ingi Erluson
David Luiz til Flamengo (Staðfest)
David Luiz er kominn heim
David Luiz er kominn heim
Mynd: Flamengo
Brasilíski varnarmaðurinn David Luiz er farinn aftur heim til Brasilíu og hefur nú gert samning við félagið út 2022.

Luiz er 34 ára gamall og hefur verið án félags síðan í sumar er samningur hans við Arsenal rann út.

Hann á magnaðan feril að baki í Evrópu þar sem hann hefur spilað með liðum á borð við Benfica, Chelsea, Paris Saint-Germain og Arsenal.

Nú er Luiz mættur aftur heim til Brasilíu og mun spila með Flamengo út 2022.

Hann er annar leikmaðurinn sem kemur úr úrvalsdeildinni en Manchester United lánaði Andreas Pereira til Flamengo á dögunum og þá samdi Willian við Corinthians.
Athugasemdir
banner
banner
banner