12.10.26 - 09:35
Innkastið
Siggi Raggi sagður á blaði hjá Fylki

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Innkastinu var farið yfir ýmsar sögusagnir sem eru í gangi í íslenska boltanum. Meðal annars var rætt um mögulegan þjálfarakapal.
Háværar sögusagnir eru um að Heimir Guðjónsson verði ekki áfram með Fylki en Árbæjarliðinu mistókst í sumar að komast upp úr Lengjudeildinni. Heimir hefur verið orðaður við Stjörnuna og ÍA.
Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna í Víkingi, hefur mest orðaður við þjálfarastöðuna hjá Fylki en í Innkastinu var sagt að Sigurður Ragnar Eyjólfsson væri einnig á blaði hjá Árbæingum.

TENGT EFNI
Siggi Raggi ekki rætt við NSÍ - Opinn fyrir endurkomu í íslenska boltann
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net gæti Sigurður tekið við með Ívar Ingimarsson sér við hlið.
Siggi Raggi hefur verið að gera virkilega flotta hluti með NSÍ Runavík í Færeyjum en liðið er með þriggja stiga forystu á toppi færeysku deildarinnar og náði glæsilegum árangri í Evrópu. Hann hefur hinsvegar sagt að hann sé opinn fyrir því að starfa aftur í íslenska boltanum á næsta tímabili.