Dani Alves hefur skrifað undir eins árs samning við Barcelona.
Þessi 38 ára gamli hægri bakvörður lék síðast með liðinu á árunum 2008-2016. Hann lék síðast með Sao Paulo í heimalandi sínu Brasilíu.
Hann hefur verið orðaður við félagið að undanförnu en það leit út fyrir að hann væri ekki að snúa aftur. Hann hefur hinsvegar snúið aftur en Xavi vildi mikið fá hann til félagsins.
Hann byrjar að æfa með liðinu í næstu viku en hann getur ekki byrjað að spila fyrr en í janúar.
Athugasemdir