Haraldur Einar Ásgrímsson hefur gert þriggja ára samning við FH en hann kemur til félagsins frá Fram.
Þessi 21 árs gamli vinstri bakvörður var í lykilhlutverki í liði Fram sem vann sér sæti í efstu deild á næsta ári með því að vinna Lengjudeildina. Hann var valinn í lið ársins.
Hann lék sína fyrstu leiki með Álftanesi í meistaraflokki árið 2018 en gekk til liðs við Fram ári síðar.
Ólafur Guðmundsson, vinstri bakvörður FH, fór í aðgerð á dögunum en verður klár í slaginn að nýju eftir áramót.
Athugasemdir