Óskar Borgþórs: Valdimar nefndi þrjá hluti sem heilluðu mikið
Auglýsing

Tvítugur Árbæingur sem blómstraði í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á að baki fimm leiki með U21 landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði fimm mörk og lagði upp fjögur í sumar.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ég var að spyrja hann ómerkilegra spurninga um þetta og láta hann sannfæra mig.

„Mér hefur liðið mjög vel í Noregi frá því að ég kom í ágúst, búið að vera mjög gaman, alltaf jafn gaman að prófa eitthvað nýtt; flytja frá foreldrum og flytja frá Íslandi," sagði Óskar Borgþórsson, leikmaður norska félagsins Sogndal, við Fótbolta.net.
Hann var keyptur til norska félagsins frá uppeldisfélaginu Fylki í ágúst.

„Þetta gerðist á einhverjum þremur dögum, ógeðslega erfitt að kveðja alla, en maður er í þessu fyrir þetta. Það hjálpar ótrúlega mikið að hafa tvo Íslendinga úti sem maður getur talað íslensku við."
„Þeir vildu allt í einu mjög mikið fá mig"
Hvernig var ferlið?
„Umboðsmaðurinn sagði mér að Sogndal hefði mikinn áhuga og að þeir vildu fá mig strax. Þeir vildu fá mig fyrir einhvern leik sem var í miðri viku. Ég fékk að vita það á föstudegi og þetta gerðist á einhverjum þremur dögum. Þeir vildu allt í einu mjög mikið fá mig."
„Þeir komu á Valsleikinn á Hlíðarenda. Ég var góður í þeim leik," sagði Óskar og brosti. „Við töpuðum reyndar leiknum en ég var góður. Leiknum, sem þeir vildu að ég myndi spila, var svo frestað út af rigningu í Noregi."
Hvernig var gengið eftir þína komu?
„Þeim gekk mjög vel fyrri hluta tímabilsins. Síðan held ég að við höfum bara unnið 2-3 leiki eftir að ég kom inn, eitthvað galið. Þetta var samt líka hjá þeim á síðasta tímabili. Ég veit ekki hvað gerist seinni hlutann."
Var erfið ákvörðun að fara út?
„Ég var hikandi, hugsaði hvort þetta væri rétt skref, en umboðsmaðurinn sagði að þetta væri mjög gott skref. Hann sagði að ótrúlega margir hafi farið til Sogndal og svo eitthvað lengra eftir það; Sogndal sé geggjaður klúbbur til að þróa leikmenn. Það heillaði mjög vel."
Þrír hlutir sem heilluðu Óskar
Fylkismaðurinn Valdimar Þór Ingimundarson er leikmaður Sogndal. Óskar ræddi við hann áður en hann tók ákvörðunina.
„Ég var að vökva grasið á Fylkisvellinum og tók símtalið á hann. Ég var að spyrja hann ómerkilegra spurninga um þetta og láta hann sannfæra mig. Tore Andre Flo er þjálfari sem heillaði, fótboltinn sem liðið spilar; liðið vill pressa og halda í boltann. Það heillaði líka að hafa tvo Íslendinga með sér í liði."
Var áhugi frá öðrum íslenskum félögum á þessum tíma?
„Já, ég var aðeins við það að Breiðablik og Víkingur höfðu smá áhuga. En á þeim tíma hugsaði ég að ég væri ekki að fara skipta um lið innanlands. Frekar fer ég bara út."
Í annarri stöðu hjá Sogndal
Óskar er sáttur við fyrstu mánuðina úti.
„Ég er mjög sáttur með þá. Ég ætla verða enn sáttari á næsta ári, gera betur og leggja mig allan fram. Ég spilaði fjórtán leiki og var níu sinnum í byrjunarliðinu. Ég bjóst ekki við því að byrja alla leiki, var mjög sáttur við spiltímann."
„Hjá Fylki var ég á vinstri kanti þá var ég að spila sem annar af tveimur fremri miðjumönnum. Ég þurfti aðeins að venjast því fyrst að vera í þeirri stöðu en þetta kom smám saman."
Nagaði neglurnar í Noregi
Fylki var í neðri hlutanum í deildinni og var ekki öruggt með sæti sitt. Hvernig var að fara frá félaginu?
„Það var ótrúlega erfitt að fara frá þeim í þessari baráttu. En ég vissi alltaf að Fylkir var að fara halda sér uppi. Sástu hvernig þeir enduðu þetta? Gerðu það ótrúlega vel."
„Jú, ég var stressaður fyrir lokaleikinn gegn Fram; var að naga neglurnar og horfði á leikinn í Sogndal. En djöfull var ég ánægður að þeir kláruðu þetta."
Kom sjálfum sér aðeins á óvart
Óskar átti mjög gott tímabil á Íslandi, Hann skoraði fimm mörk, lagði upp fjögur og var besti leikmaður Fylkis þegar hann var seldur út. Fyrir þetta tímabil hafði hann skoraði eitt mark tímabilið 2021 og þrjú mörk í Lengjudeildinni í fyrra.
Kom hann sjálfum sér á óvart?
„Já eiginlega. Ég var aldrei að búast við því að ég væri að fara byrja alla leiki og vera einn af mikilvægustu leikmönnunum í liðinu Ég veit samt alveg hvað ég get, veit að ég stóð mig vel, en þetta kom mér aðeins á óvart," sagði Óskar.