Klopp skaut á Arsenal - „Þá hefðu þeir ekki orðið Englandsmeistarar“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jürgen Klopp, fyrrum stjóri Liverpool, fannst rangt hjá dómaranum að taka mark af Þjóðverjum í framlengingunni gegn Paragvæ í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gær.

TENGT EFNI
Umdeildasta ákvörðun mótsins til þessa? - „Ja hérna!“
Jonathan Tah skoraði með skalla eftir hornspyrnu en markið var dæmt af.
Waldemar Anton var dæmdur brotlegur í teignum fyrir að standa í vegi fyrir Orlando Gill, markverði Paragvæ, en þegar endursýningin er skoðuð virtist þetta ansi ódýr aukaspyrna.
Gill virtist sækja snertinguna og dómarinn féll fyrir því. Aukaspyrna var dæmd og Jürgen Klopp, sem stýrði Liverpool í níu ár, segir að Arsenal hefði aldrei orðið Englandsmeistari ef dómgæslan væri svona á Englandi.
Arsenal skoraði 25 mörk eftir föst leikatriði í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og setti um leið met. Það var reglulega í umræðunni að Arsenal kæmist upp með alls konar hluti í teig andstæðinganna og benti Klopp á það.
„Ef þetta er ekki mark þá væri Arsenal ekki Englandsmeistari. Þeir skoruðu 60 prósent af mörkum sínum með þessum hætti, þannig að þetta er mjög grimmt,“ sagði Klopp á MagentaTV.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska landsliðsins og sérfræðingur á RÚV, tók í sama streng og benti á að Arsenal hefði komist upp með þetta trekk í trekk á tímabilinu án þess að dæmt væri á það.