Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. janúar 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho um Alfie Devine: Vil ekki sjá hann í eina eða tvær vikur
Alfie Devine.
Alfie Devine.
Mynd: Getty Images
Alfie Devine varð yngsti markaskorari í sögu Tottenham þegar hann skoraði í stórsigri gegn Marine úr áttundu efstu deild síðastliðinn sunnudag í FA-bikarnum.

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að Devine sé núna aftur farinn þangað þar sem hann á heima.

Mourinho var spurður að því á blaðamannafundi hvort 16 ára gamli strákurinn væri búinn að brosa allt frá því hann skoraði markið. Portúgalinn sagðist ekki vita það.

„Ég veit það ekki vegna þess að ég sendi hann aftur í unglingaakademíuna. Þegar þú kemst svona hátt upp, þá er það rétti tíminn að fara aftur þar sem hann á heima og slaka aðeins á því það er mikið sviðsljós á honum," sagði Mourinho.

„Ég vil ekki sjá hann í eina eða tvær vikur," sagði Mourinho jafnframt.

Mourinho vill greinilega að strákurinn ungi haldi sig á jörðinni. Tottenham mætir Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner