Fotbolti.net
13.02.26 - 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þorvaldur Smári á reynslu til Sunderland

Þorvaldur Smári á reynslu til Sunderland
Canon

Mynd: HK

Þorvaldur Smári Jónsson, leikmaður HK, er á leið til Sunderland á reynslu í lok mánaðar.

Hjörvar Hafliðason, stuðningsmaður HK, vakti athygli á þessu í hlaðvarpsþættinum Dr. Football.

Þorvaldur Smári, sem er miðjumaður fæddur árið 2008, kom við sögu í ellefu leikjum með HK á síðasta tímabili.

Hann hefur verið í úrtaks- og æfingahópum yngri landsliðanna en hefur ekki spilað unglingalandsleik til þessa. Hann æfði með U19 landsliðinu í lok síðasta mánaðar.
Skrifaði undir hjá HK og fór á reynslu til Forest
TENGT EFNI

Skrifaði undir hjá HK og fór á reynslu til Forest

Sunderland, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, situr í 11. sæti deildarinnar eftir 26 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.