Jose Mourinho, stjóri United, fékk útreið á Twitter frá mörgum stuðningsmönnum í tengslum við leikinn. Hér að neðan má sjá brot af umræðunni.
Ef knattspyrnan væri sanngjörn íþrótt væri Man Utd í 5-6 sæti í PL og búið að reka Mourinho. Þetta er bara því miður ekki alltaf sanngjarnt.
— Guðmundur Óli (@GudmundurOli) March 13, 2018
Vel gert Sevilla!
Mourinho, þú ert aumingi!
Sevilla er búið að fá á sig 42 mörk í 28 leikjum í La Liga. Samt datt Mou ekki í hug að sækja á þá fyrr en í stöðunni 0-2. Það er eitt að bera virðingu fyrir andstæðingnum og svo er annað að vera kjáni.
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) March 13, 2018
Í alvöru talað. Þetta er svo langt frá því að vera boðlegt. Eins og með Louis van Gaal og tapið gegn Wolfsburg þá er þetta tap gegn Sevilla ákveðinn forsendubrestur hjá Mourinho. Hvað var hann að spá? Ég skil ekkert.
— Tryggvi Páll (@tryggvipall) March 13, 2018
You can’t say Sevilla don’t deserve their victory. They’ve won tactically and been better all over. United’s game-plan was baffling: deep lying, ponderous and negative.
— Gary Lineker (@GaryLineker) March 13, 2018
Leikplanið hans Jose Mourinho. pic.twitter.com/xgXh3BtBzB
— Kjartan Atli (@kjartansson4) March 13, 2018
Frank De Boer myndi ekki tapa fyrir Sevilla í tveimur leikjum. #MourinhoOut
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) March 13, 2018
Þetta er ekki bara ógeðslega lélegt heldur líka óþolandi leiðinlegt. Burt með Portúgalann.
— Yngvi Eysteins (@yngvieysteins) March 13, 2018
Gírkassinn farinn hjá Mourinho og rútan föst í handbremsu, elsku kallinn.. 😂😂😂
— Stefnir Stefánsson (@StefnirS) March 13, 2018
Versta við þetta allt saman er hvað Mourinho var að kosta okkur De Gea með þessum leik.. Enginn heimsklassaleikmaður á að þurfa þola svona bull #fotboltinet
— Árni Eyjólfsson (@ArniBragi) March 13, 2018
Bless bless meistaradeild #fotboltinet pic.twitter.com/ihHFPKgIpU
— Bergmann Guðmundsson (@BergmannGudm) March 13, 2018
Er bannað að spila helvítis pressufótbolta einu sinni á lífsleiðinni? Ótrúleg nálgun hjá steinaldarmanninum í brúnni
— Örn Rúnar Magnússon (@ossimagg) March 13, 2018
21 - Sevilla attempted 21 shots tonight; the most that Manchester United have allowed an opposition side at Old Trafford in a competitive match since Real Madrid attempted 22 in March 2013 (Champions League). Peppered. pic.twitter.com/34D4VYb62A
— OptaJoe (@OptaJoe) March 13, 2018
Pæla í því að starfa sem þjálfari með þennan hóp og þetta er nálgunin í tveggja leikja seríu á móti liði í 5. sæti á Spáni. Eins clueless og það gerist #gtfo
— Auðunn Örn Gylfason (@AuddiGylfa) March 13, 2018
Varnarleikur liðsins sem heild er fínn en vörnin sjálf (back4) er alltof léleg fyrir þetta upplegg. Fer alltof mikil orka í þessa djöfulsins þvælu. Robben og Joe Cole þurftu ekki að vera vængbakverðir.
— Jói Skúli (@joiskuli10) March 13, 2018
Punkturinn minn: þú hlýtur að spila á styrkleika leikmannahópsins. Sóknarleikmenn Utd eru ljósárum betri en varnarmennirnir. Það þyrfti eiginlega Ancelotti til að troða þeim öllum inn.
— Jói Skúli (@joiskuli10) March 13, 2018
Fínt að ná 0-0 í Sevilla með ljótustu nálgun á fótboltaleik sem sést hefur síðan Móri var með Inter. Fara svo heim og láta taka sig í nefið á OT. Þvílíka planið. Vonandi kippir Fergie í spotta og lætur reka þetta skoffín.
— Andri Gunnarsson (@andrigunnars) March 13, 2018
Hvert var eiginlega leikplanið hjá Móra? Algjört þrot. Tek undir orð nafna míns @GummiBen Sigur fótboltans!
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) March 13, 2018
Jæja, býð mínum sex ára ekki upp á meira af þessu þroti. Hvernig getur þjálfari sem hefur unnið svo mikið, með svo mikil gæði í höndunum verið svona passívur?
— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) March 13, 2018
Sevilla miklu betra lið. Lítið við því að segja og enn minna hægt að gera. Outplayed og outcoached.
— Teitur Örlygsson (@teitur11) March 13, 2018
Gjörsamlega óverjandi nálgun hjá Mourinho á þessa viðureign. Þetta er Sevilla, ekki Barcelona. Óskiljanleg virðing sem hann er að sýna þessum andstæðing.
— Tryggvi Páll (@tryggvipall) March 13, 2018
Enn eitt snoozefestið frá Mourinho. Sjónvarpsrétthafar CL hljóta að setja klausu um lægra gjald þau ár sem United nær að stelast bakdyramegin inn í keppni stóru strákanna.
— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) March 13, 2018
Miðað við spilamennsku United í leiknum og í einvíginu þá hafa þeir lítið lengra að gera í keppninni. Það eru stóru málin. Mourinho gamblaði með að ná í 0-0 á Spáni og er að fá það mjög blautt í andlitið.
— Rikki G (@RikkiGje) March 13, 2018