Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. mars 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Brian Brobbey til RB Leipzig (Staðfest)
Brian Brobbey er mættur til Leipzig
Brian Brobbey er mættur til Leipzig
Mynd: Getty Images
Þýska félagið RB Leipzig hefur náð samkomulagi við hollenska framherjann Brian Brobbey en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Ajax í sumar.

Brobbey, sem er 19 ára gamall, hefur skorað 13 mörk og lagt upp önnur 5 mörk í 26 leikjum í öllum keppnum.

Samningur Brobbey við Ajax rennur út í sumar og ákvað leikmaðurinn að skoða möguleika sína og nú hefur hann komist að samkomulagi við Leipzig.

Hann gerir fjögurra ára samning við félagið gengur formlega til liðs við Leizpig í sumar.

Brobbey mun berjast við Alexander Sorloth og Yussuf Poulsen um framherjastöðuna.


Athugasemdir
banner
banner
banner