Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 13. mars 2021 17:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Brynjar Ásgeir verður spilandi þjálfari ÍH (Staðfest)
Brynjar Ásgeir í leik með FH.
Brynjar Ásgeir í leik með FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Ásgeir Guðmundsson verður spilandi þjálfari hjá ÍH í Hafnarfirði í sumar.

Þetta segir í tilkynningu frá félaginu í dag.

Brynjar Ásgeir stýrði ÍH upp úr 4. deild síðasta sumar en hann var einnig samningsbundinn FH á síðasta ári. Hann spilaði hins vegar ekkert með FH vegna meiðsla.

Samningur hans við FH rann út eftir síðasta tímabil en hann hefur núna ákveðið að spila með ÍH.

„Brynjar Ásgeir, þjálfari ÍH liðsins, ætlar að spila einnig með liðinu í sumar. Brynjar sleit hásin síðasta vor og er enn ekki kominn á fulla ferð. Vonir standa til að Brynjar verði byrjaður að spila á fullu innan fárra vikna," segir í tilkynningu ÍH en hann er kominn með leikheimild.
Athugasemdir
banner
banner
banner