Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 13. maí 2021 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - Fjórir leikir á sama tíma í Pepsi Max
Breiðablik hefur ekki farið vel af stað og er aðeins með eitt stig.
Breiðablik hefur ekki farið vel af stað og er aðeins með eitt stig.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það er spennandi dagur framundan hér á Íslandi í dag þar sem það verður meðal annars leikið í Pepsi Max-deild karla og Lengjudeildunum tveimur.

Það fara fram fjórir leikir í Pepsi Max-deild karla og hefjast þeir allir á sama tíma, klukkan 19:15.

Stjarnan, sem er með eitt stig, tekur á móti Víkingi, FH spilar við ÍA, Breiðablik fær nýliða Keflavíkur í heimsókn og Íslandsmeistarar Vals mæta HK.

Í Lengjudeild karla hefst önnur umferð deildarinnar með leik Þór og Grindavíkur á Akureyri. Grindavík vann 3-1 sigur á ÍBV í fyrstu umferð á meðan Þór tapaði fyrir Gróttu, 4-3.

Í Lengjudeild kvenna eru tveir leikir. HK spilar við KR klukkan 14:00 og Grindavík og Haukar mætast um kvöldið. Það er einnig spilað í 2. deild kvenna, 3. deild karla og 4. deild karla í dag en alla leiki dagsins má sjá hér að neðan.

fimmtudagur 13. maí

Pepsi Max-deild karla
19:15 Stjarnan-Víkingur R. (Samsungvöllurinn)
19:15 FH-ÍA (Kaplakrikavöllur)
19:15 Breiðablik-Keflavík (Kópavogsvöllur)
19:15 Valur-HK (Origo völlurinn)

Lengjudeild karla
16:00 Þór-Grindavík (Boginn)

Lengjudeild kvenna
14:00 HK-KR (Kórinn)
19:15 Grindavík-Haukar (Grindavíkurvöllur)

2. deild kvenna
13:00 Einherji-Álftanes (Vopnafjarðarvöllur)
14:00 Fjarðab/Höttur/Leiknir-ÍR (Fjarðabyggðarhöllin)
16:00 SR-Völsungur (Þróttarvöllur)

3. deild karla
16:00 Tindastóll-Höttur/Huginn (Sauðárkróksvöllur)

4. deild karla - A-riðill
14:00 Kría-Snæfell (Vivaldivöllurinn)

4. deild karla - B-riðill
14:00 Hamar-Uppsveitir (Grýluvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner