Sigurður Hrannar Þorsteinsson gekk í gærkvöldi í raðir Gróttu frá uppeldisfélagi sínu ÍA.
Sigurður kom við sögu í fjórtán leikjum í Pepsi Max-deildinni í fyrra og skoraði í þeim eitt mark.
Sigurður kom við sögu í fjórtán leikjum í Pepsi Max-deildinni í fyrra og skoraði í þeim eitt mark.
Hann hafði ekki komið sögu í fyrstu tveimur leikjum ÍA á leiktíðinni. Sigurður á samtals að baki sautján keppnisleiki með ÍA og níu leik með Kára á sínum ferli.
Hann er 21 árs gamall miðjumaður sem mun aðstoða Gróttu að ná sínu markmiði í Lengjudeildinni í sumar.
Athugasemdir