fös 13. maí 2022 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ingimar Helgi ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari Árborgar (Staðfest)
Lítil flugvél í bakgrunni
Lítil flugvél í bakgrunni
Mynd: Árborg
Það voru stórtíðindi í 4. deildinni í gær þegar Árborg tilkynnti um ráðningu á aðstoðarþjálfara. Ingimar Helgi Finnsson hefur verið ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari liðsins. Hlustendur hlaðvarpsþáttarins Enski boltinn hér á Fótbolti.net ættu að kannast vel við Ingimar sem hefur verið reglulegur gestur í hlaðvarpinu og staðið sig með mikilli prýði.

„Ingimar er reynslumikill leikmaður, sem hefur spilað hátt í 200 leiki á ferlinum fyrir Árborg og Ægi og binda Árborgarar miklar vonir við að hann geti miðlað af reynslu sinni og herkænsku til yngri leikmanna," segir í tilkynningu Árborgar.

Ingimar kemur inn í öflugt þjálfarateymi hjá félaginu en aðalþjálfari Árborgar er Tomasz Luba.

„Það er mikill heiður fyrir mig að Tomasz og Sigurður formaður hafi leitað til mín, og stökk ég á tækifærið eftir léttan umhugsunarfrest. Ég var ekki tilbúinn að hætta að spila og var það lykilforsenda í þessari ákvörðun. Aldurinn er aðeins farinn að segja til sín en vonandi get ég hjálpað liðinu innan sem utan vallar í sumar,“ sagði Ingimar við undirritun samningsins, sem að sjálfsögðu fór fram í flugskýli á Selfossflugvelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner