Fotbolti.net
13.05.23 - 21:20
Daníel Smári Magnússon

Arnar Grétars: Einn besti hálfleikur sem að við höfum spilað

Auglýsing
Arnar kom, sá og sigraði á sínum gamla heimavelli.

Arnar kom, sá og sigraði á sínum gamla heimavelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst við vera frábærir í dag og sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem við klárum leikinn og spilum bara hrikalega flottan fótbolta á móti frábæru liði. Við komum á þennan völl, halda hreinu og gefa nánast ekkert. Þeir voru aðeins að ná að senda fyrir og svoleiðis, en spila sig aldrei í gegn og skapa sér varla færi í leiknum,'' sagði kampakátur Arnar Grétarsson eftir að hafa hrósað Eurovision-faranum Diljá í hástert í leiðinni. Hans menn í Val gerðu góð ferð norður yfir heiðar og unnu öruggan 0-4 sigur á KA í dag.

Valsmenn léku á als oddi í dag, þá sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem að þeir leiddu 0-3 þegar að liðin gengu til búningsherbergja. Arnar var himinlifandi með frammistöðu liðsins í glimrandi fyrri hálfleik.

„Við erum alltaf að verða betri og betri og boltinn gengur vel innan liðsins - og góð hreyfing. Það er lykillinn. Að menn hreyfi sig þegar þeir eru ekki með boltann og þá verður það auðveldara fyrir þann sem að er á boltanum.''

Hann hélt áfram: „Þetta er örugglega einn besti hálfleikur sem að við höfum spilað það sem af er. Bara virkilega gaman og skorum falleg mörk. Mér fannst að við hefðum getað skorað meira, vegna þess að við vorum að vinna boltann svo oft hátt uppi trekk í trekk, en vorum ekki að nýta það. Ég ætla ekki að vera hrokafullur. 3 mörk [í fyrri hálfleik] á móti KA hér, það eru ekki mörg lið sem að munu gera það.''

Gengi Vals var vægast sagt vonbrigði á síðasta tímabili. Nú kveður við nýjan tón og liðið situr á toppi Bestu-deildarinnar með 16 mörk í plús, þar sem að liðið hefur unnið 6 af fyrstu 7 leikjum tímabilsins. Hvað er liðið að gera öðruvísi?

„Við þurfum bara einhverja klukkutíma í það! Við erum svosem ekkert að fara út í það, en menn gera hlutina bara á mismunandi máta og við höfum bara verið að fókusa í það að menn séu að vinna fyrir hvern annan. Þetta er liðssport og þegar að menn eru tilbúnir að hlaupa og djöflast fyrir hvorn annan að þá koma gæði í ljós. En ef menn ætla ekki að gera það og eru ekki tilbúnir að leggja sig 110% fram, þá nærðu aldrei alvöru árangri,'' sagði Arnar Grétarsson.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.