Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings tók út leikbann þegar FH kom í heimsókn í toppslag í Bestu-deild karla í gær eftir að hafa fengið að líta rauða spjaldið gegn HK á dögunum.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 FH
Fræg var sagan frá síðustu leiktíð þegar hann tók út leikbann á Hlíðarenda gegn Val í stöðugu símasambandi á meðan leik stóð. Eitthvað sem varð til þess að reglur KSÍ voru gerðar skýrari. Núna er það stranglega bannað.
Að þessu sinni hafði Arnar ekkert samband við aðstoðarmenn sína á bekknum heldur kom hann sér fyrir í lokuðu rými efst í stúkunni við hlið vallarþularins í Víkinni.
Svo vitnað sé í hina mögnuðu hljómsveit Mannakorn í laginu 'Á rauðu ljósi', þá sat hann þarna inni í búri úr gleri og stáli enda á rauðu spjaldi.
Á myndunum er Arnar að fylgjast með leiknum í búrinu.
Athugasemdir