Íslenska landsliðið mætir Japan í æfingaleik í Tókýó 31. maí og var hópurinn fyrir leikinn tilkynntur fyrr í dag.
Leikurinn fer fram utan opinbers landsleikjaglugga. Ísland mætir einnig Argentínu í Alabama 10. júní, en sá leikur er innan landsleikjagluggans. Því eru tveir mismunandi hópar í verkefnunum.
Það var létt yfir Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara á blaðamannafundi landsliðsins í hádeginu, en hann á góðar minningar frá Japan.
Leikurinn fer fram utan opinbers landsleikjaglugga. Ísland mætir einnig Argentínu í Alabama 10. júní, en sá leikur er innan landsleikjagluggans. Því eru tveir mismunandi hópar í verkefnunum.
Það var létt yfir Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara á blaðamannafundi landsliðsins í hádeginu, en hann á góðar minningar frá Japan.
„Rólegur“
Á blaðamannafundinum var Arnar spurður út í Japan og hvernig Tókýó lagðist í hann. Þá sagði hann frá því að hann hafi einu sinni áður farið til Japans.
„Sælla minninga skoraði ég í leik með landsliðinu 1994 gegn úrvalsliði Japans eða eitthvað í þá áttina.“ Þá tók Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ orðið og kallaði japanska liðið fyrirtækjalið. Arnar bað þá Ómar um að róa sig og uppskar mikinn hlátur frá blaðamönnum.
Ágæt ferð til Japans
Við athugun á leiknum við Japani rakst undirritaður á tveggja dálka blaðagrein frá íþróttablaði DV þann 21. mars 1994. Guðmundur Hilmarsson, núverandi blaðamaður á mbl.is, er titlaður fyrir fréttinni.
„Íslenska landsliðið í knattspyrnu gerði ágæta ferð til Japans en í morgun klukkan sex að íslenskum tíma lauk leik Íslands og japanska 1. deildar liðsins Resol Hitachi með 1-2 sigri íslenska liðsins.“
Um mark Arnars Gunnlaugssonar var skrifað: „Íslendingar náðu forystu á 15. mínútu leiksins þegar Arnar skoraði gott mark eftir laglegt samspil við Arnór Guðjohnsen en Japanir jöfnuðu metin tíu mínútum fyrir leikhlé,“ kom fram en Ólafur Þórðarson skoraði sigurmarkið á 75. mínútu.

Of ungur til að kunna að meta sushi
Arnar sagði þó á Blaðamannafundinum hafa verið of ungur til þess að hafa kunnað að meta ferðina. Þarna var Arnar 21 árs og á mála hjá Feyenoord.
„Þannig að ég hef komið til Japans. Ég var allt of ungur til þess að kunna meta Sushi og menningu Japana. Núna er ég gamall og vonandi vitur, þannig ég mun klárlega njóta vel í Japan.“
Hægt er að sjá blaðamannafundinn hér að neðan en Arnar var spurður út í Japan á mínútu 10:40.



