Byrjunarlið HK og Víkings: Sex breytingar hjá Víkingi - Ein hjá HK eftir tap

Ármann Ingi Finnbogason byrjar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Helgi Benediktsson er eina byrjunarliðs breytingin hjá HK

Mynd: HK

Ármann Ingi Finnbogason byrjar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eru hafin og eitt af leikjum kvöldsins fer fram í Kórnum, þar sem HK fær Víking R.
Verðugt verkefni fyrir Lengjudeildarlið HK að fá Víkinga í þessum 16-liða úrslitum þar sem sæti í 8-liða úrslitum er í boði fyrir sigurliðið.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari HK gerir aðeins eina breytingu á byrjunarliði sínu eftir tapið gegn Vestra í Lengjudeildinni. Sú breyting er að Aron Kristófer Lárusson dettur á bekkinn fyrir Viktor Helga Benediktsson.
Víkingar hrista vel í hópnum eftir góðan 6-0 sigur á Þór í Bestu deildinni fyrir nokkrum dögum síðan. Sex breytingar er á byrjunarliðinu, Viktor Örlygur, Erlingur, Tarik, Aron Elís Þrándar, Davíð Örn og Ármann Ingi koma allir í byrjunarliðið.
Það eru því heldur betur einnig vel mannaður bekkur hjá Víkingum í kvöld. Elías Már, Óskar Bogga, Valdimar Þór, Karl Friðleifur, Daníel Hafsteins og Helgi Guðjónsson taka sér allir sæti á bekknum.

Viktor Helgi Benediktsson er eina byrjunarliðs breytingin hjá HK

Mynd: HK




