Fotbolti.net
13.05.26 - 15:10
Kári Snorrason

Fullkomið tækifæri til að skoða Viktor - „Korter síðan að hann var að spila á Íslandi“

Viktor er í fyrsta sinn í A-landsliðshópnum.

Viktor er í fyrsta sinn í A-landsliðshópnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Landsliðshópurinn fyrir vináttuleiki Íslands gegn Japan og Argentínu í lok maí og byrjun júní var opinberaður í hádeginu.

Viktor Bjarki Daðason er í fyrsta sinn í landsliðshóp en hann er til taks í leiknum gegn Japan en ekki Argentínu. Hópurinn er tvískiptur þar sem Japans-leikurinn er fyrir utan opinberan landsleikjaglugga.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson var spurður út í Viktor eftir að hópurinn var tilkynntur í dag.
<b>Tveir landsliðshópar valdir</b> - Ögmundur og Viktor Bjarki fara til Japans
TENGT EFNI

Tveir landsliðshópar valdir - Ögmundur og Viktor Bjarki fara til Japans

„Ég gerði mér ferð til að sjá hann spila á móti Barcelona í Meistaradeildinni fyrr í vetur (þar sem Viktor skoraði). Það kom mér á óvart hversu þroskaður hann er orðinn.

Það er korter síðan að hann var að spila hérna á Íslandi. Það er ótrúlegt hvernig ferillinn hans hefur breyst mikið á síðasta ári. Ótrúlega gaman að fylgjast með honum og sjá það traust sem FCK, stærsta liðið í Skandinavíu, setur á hans herðar.“


Rétt tímasetning
Viktor hefur gert tilkall í að komast í A-landsliðshópinn. Hann var valinn í U21-hópinn síðast þar sem hann skoraði tvö mörk gegn Eistlandi og var í byrjunarliðinu í 2-1 tapi gegn Frökkum.

„Við sáum hann spila með U21 árs landsliðinu, hann og Daníel Tristan voru mjög góðir saman í síðasta verkefni gegn Frökkum. Ég held að hans leið sé hárrétt núna. Það er komið tækifæri til fyrir okkur að kíkja á hann og hann að kíkja á hvað við erum að fara gera. Ég hef enga trú á öðru en að hann muni massa þetta.“

Vonast til að sjá hann byrja í bikarúrslitunum
FCK mætir Elías Rafni Ólafssyni og félögum í Midtjylland í bikarúrslitum á morgun. Arnar sagði á blaðamannafundinum vonast til þess að sjá Viktor byrja leikinn.

Viktor byrjaði síðasta leik í deild þar sem hann skoraði á fyrstu mínútu í 4-0 sigri FCK á Silkeborg. Hann hefur skorað tíu mörk í 27 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Skoraði dramatískt jöfnunarmark á Hlíðarenda 2024.

Skoraði dramatískt jöfnunarmark á Hlíðarenda 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar fer yfir valið - „Ekki á hverjum degi sem maður mæti Messi og félögum“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.