Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. júní 2018 13:10
Ívan Guðjón Baldursson
Connor Goldson til Rangers (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Búið er að staðfesta félagaskipti Connor Goldson frá Brighton til Rangers.

Steven Gerrard var nýlega ráðinn til Rangers og ætlar hann að styrkja leikmannahópinn til muna fyrir næsta tímabil.

Goldson er 25 ára varnarmaður sem á 42 leiki að baki á þremur árum hjá Brighton.

Goldson kostar skoska félagið um 3 milljónir punda. Rangers endaði í þriðja sæti á síðasta tímabili, tólf stigum eftir Celtic.
Athugasemdir
banner