Arsenal hefur krækt í hinn nítján ára gamla Marquinhos. Hann heitir fullu nafni Marcus Vinicius Oliveira Alencar og kom upp í gegnum unglingastarfið hjá Sao Paulo.
Hann spilaði svo fyrsta leikinn fyrir aðalliði í júlí í fyrra, þá átján ára gamall.
Hann spilaði svo fyrsta leikinn fyrir aðalliði í júlí í fyrra, þá átján ára gamall.
Marquinhos á að baki landsleiki fyrir U16 og U17 lið Brasilíu og mun hann halda til London á næstu vikum til að hitta liðsfélaga sína og taka þátt í undirbúningstímabilinu fyrri komandi tímabil á Englandi.
„Við erum hæstánægðir að hafa komist að samkomulagi við Sau Paolo, við höfum fylgst með Marquinhos í talsverðan tíma og við sjáum hann sem framtíðarleikmann hjá félaginu," segir í tilkynningu Arsenal.
Talið er að Arsenal greiði um þrjár milljónir punda fyrir vængmanninn.
Athugasemdir